29. ágúst 2007 klukkan 02:27
Jæjaaaa allt getur gerst jú jú ég er búin að setja inn slurk af myndum.
Dimmiso, busateiti, kajakferð, búlgaríuteiti, ferð 4.T á óðalsetið Ystu-vík, útskriftarhelgin og Roskilde. Reyndar bara örfáar myndir af Hróarskeldunni þar sem að myndavélin var á leiðinni að drukkna rétt eins og allt annað sem ég átti. Vel á minnst síminn minn drukknaði m.a. og ég er ekki með númerin ykkar, þau ykkar sem hafa ekki nú þegar gert það sendið mér nú eins og eitt skeiti eða bjallið í mig.
Jæja sumir halda eflaust ennþá að ég sé að vinna á sjúkrahúsinu og ætli að vinna fram að áramótum og fara til Chile að læra spænsku ...eins og ég hafði planað. Jafnvel enn aðrir hafa haldið að ég væri á beinni leið í sjúkraþjálfarann (so last year ;))
Byrjun sumarsins einkenndist af því að ég skipti um plan og skoðun 7 sinnum á dag og endaði með því að ég hef ekki komið nálægt sjúkrahúsinu heldur hef ég verið á hlaupum um Café Nielsen í allt sumar til að gefa fólki að borða og drekka, bara púl, and I like it :D Búið að vera snilld að vinna þarna. Svo gerði ég mér grein fyrir því að ég yrði að vera á Íslandi þetta árið, vegna óútskýrannlegra orsaka. Tók varaplanið og er að flytja suður núna á fimmtudaginn og ætla að læra viðskiptafræði í HÍ. Hef mætt stórum augum fjölskyldu og vandamanna þegar ég hef sagt þeim þessi tíðindi í fyrsta lagi vegna þess að ég ætla að halda strax áfram í skóla og svo viðskiptafræði ? því átti ekki nokkur skapaður maður von á.
Var að klára síðasta vinnudaginn og farin að hlakka hrikalega til að fara suður, samt ekki laus við smá kvíða, er ekki alveg viss hversu gáfulegt þetta plan mitt er. En ég sé allavegana fram á góða tíma þar sem að flest allir sem ég þekki verða í bænum í vetur, í staðin fyrir að allir verða í bænunm nema ég og nokkrar (og frábærar) sálir eins og þetta var í sumar.
En allavegana óskemmtilegt blogg með það tvennt að markmiði að láta vita af mér og svo jú myndunum.
Tékkið á þessu
Love Herdís
Herdís Magna
16. apríl 2007 klukkan 16:12
...mun ég gefa mér tíma í að setja inn myndir, jafnvel á næstunni, jafnvel ekki, hver veit ?
Herdís Magna
25. mars 2007 klukkan 19:54
Myndir frá tveimur síðustu helgum komnar inn.
Hallveig kom til mín þarsíðasta fimmtudag, bara gaman að fá stelpuna. Herbergið mitt angar samt ennþá af harðfiski ;) Lögðum af stað suður á föstudeginum með Öglu, Katrínu og Kötlu eftir að hafa eytt morgninum í ræktinni og pæla í kaloríum í prótínstöngum (átak í gangi fyrir bjútíkeppnina hennar). En allavegana ferðinni var heitið suður þar sem ég kíkti á nýútungaðann litla frænda minn sem Gríma frænka var að eiga og sötraði eins og einn. tvo öl með vinum mínum ;)
Nenni ekki að segja meir en endilega kíkið á myndirnar sem eru í Reykjavík möppunni
Oooog svo var það afmælispartý hjá Röggu og Úllu, þar sem fólk viss mis mikið en það var bara gott... í Akureyrarmöppunni
Herdís Magna
04. mars 2007 klukkan 17:15
Myndir já
Búin að setja myndirnar inn frá Reykjavík og Palla í gærkvöldi, reyndar eru engar myndir af Palla, var ekkert að standa mig í þessu en e-ar úr fyrirpartý...
Hef nú alveg upplifað skemmtilegri kvöld, en endirinn er alltaf bestur, fann Öglu sem var orðin jafn pirruð og ég á troðningnum inni í Sjalla, strunsuðum út og tókum hratt og gott pöbbarölt... takk fyrir mig
komma
Herdís Magna
12. febrúar 2007 klukkan 14:15
Jebbs búin að setja allar myndirnar inn sem ég tók á Laugardeginum, myndavélin fékk frí mestan hluta kvöldsins... eru aðallega e-ar myndir af okkur stúlkunum þegar við stofnuðum til rósavínssamsætis á risa stóra klósettinu inni á Karó...
Gleymdi að taka myndir á föstudaginn en það var furðulegt kvöld þar sem mér tókst að hanga aldrei með sama fólkinu, stinga af hvað eftir annað og þvælast út um allt. Endirinn var mjög spes...
Laugardaurinn var minn opinberi hnakka dagur, lífsreynsla sem bættist við þar ;)
Kreatíngaurinn var tvímælalaust maður kvöldsins:
Ætla að byðja Gittu um að druslast e-n tíman í bæinn með skilríki sem innihalda kennitölu ! Furðulega visa rugl...
Og já svo ég þurfi ekki að svara þessari spurningu einu sinni enn... Nýju myndirnar eru hérna í link fyrir ofan, ekki djammmyndirnar mínar í myndalinkunum til hliðar... í akureyrarmöppunni að þessu sinni ;)
Mmmm svo verður stefnan tekin til höfuðborgarinnar á miðvikudag, allur árgangurinn að fara í háskólakynningu og bara gleðin ein sem á að ríkja um helgina.... Hlakka svo til :)
Magna kveður að sinni
- ekki svo mössuð, ekki svo mikið á kreatíni og getur svo sannarlega drukkið
Herdís Magna
03. febrúar 2007 klukkan 21:20
Hverjum datt í hug að setja Örn Arnarson á skjá vorrar þjóðar eftir landsleikinn !?!
-Mynnir mig á þegar við Sólveig skelltum okkur á Nasa fyrir tveimur árum og e-r ferlega pirrandi stór gaur var alltaf að taka plássið mitt og traðka á mér á dansgólfinu. Gaf karli á endanum fast og gott olnbogaskot, leit við, jább ekki minni sundkappi þar á ferð en Örn Arnarson. Þetta fannst gaurunum sem við vorum að dansa við ekkert lítið fyndið. Haha já já þetta var kvöld selebanna, kynntist vini mínum Ásgeiri Kolbeins einnig þetta kvöld...
Mig langar til Akureyrar !!!
Herdís Magna
21. janúar 2007 klukkan 21:07
vell vell...
Prófin búin og ég komin í tveggja vikna frí, veit ekkert hvað ég á af mér að gera...
Tilefninu var að sjálfsögðu fagnað. Bara gaman
Keyrði heim í ömurlegu veðri í gær... lennti í að bakka niður víkurskarðið, það var nú gaman. E-ð smá djamm í gær her på Egilsstaðir, þreytan tók völdin og ég fór nú bara snemma að sofa... það var gott. Vil þakka öllum sem hringdu í mig í nótt, veit ekkert hvað ég sagði við ykkur...
Og já myndirnar frá föstudeginum eru komnar inn... !
Herdís Magna
07. janúar 2007 klukkan 21:55
Jább allt gerir maður bara til að þurfa ekki að læra...
PRÓFTÍÐ
Ekkert var um tjúttið þessa helgi þó svo að það hafi stemmt í það í nokkur skypti.... Mér til mikillar hamingju var ekki tjúttað, samt ekki
En já í ljósi þess að leiðinlegur tími ársins er skollinn á; próftíð, er ekkert um nýjar myndir að þessu sinni, hefði mátt vera meira af gamlárs en mjaá ég er eiginlega fegin að myndavélin var ekki dregin upp meira það kvöld því að þá væri hún týnd eins og svo margt annað. Demit týndi m.a. öðrum eyrnalokknum mínum, síðasta heila parið sem ég átti... núna á ég bara 40 staka eyrnalokka... ohh
KÖNNUN
Bendi á nýja skoðanakönnun hér á hægri hönd, kjósið nú villt og galið svona þannig að heimsóknarfjöldinn og fjöldi atkvæða samsvari sér eitthvað.
Annars reikna ég bara með flestum fjölda atkvæða í stokker
AUGLÝSING:
- Ert þú lukkulegur ungur herramaður og lýtur út eins og Jesse Spencer ? Ef svo er hafðu þá samband og ég kem þér í samband við fjallmyndarlega ljóshærða elskulega stúlku sem mun veita þér ást og hlýgju að eilífu. (hafðu samband hið snarasta því að stúlkan þráir ást og liggur slefandi heima hjá sér, búið er að fara tvisvar í gegnum stokkerabókina og stefnir allt í að þurfi að næla í busa !)
Mátt vera Jesse Spencer sjálfur...
-Þið hinir sem lýtið ekki út eins og Jesse en eigið heklaða hvíta hettupeysu sem er flegin niður á nafla, eruð flaming hot, eigið jafnvel öfundsjúkann flaming hot kærASTA sem vinnur með þér við flaming hot listdans, hafið dekurdansað ljóshærða kynbombu úti í Búlgaríu á Lazur og samþykkt að láta taka mynd af ykkur saman....
PLÍS hafðu þá samband svo að síðustu orð stúlkunnar verði ekki:
RAGGA AFHVERJU VARSTU EKKI MEÐ MYNDAVÉLINA !!!!
Herdís Magna
28. desember 2006 klukkan 20:04
Jább hef komist að þeirri niðurstöðu að mér finnst ekkert gaman að blogga... fannst það einu sinni en það er liðin tíð börnin mín blíð og fríð...
Auk þess sem ég bloggaði aðalega um tjútthamfarir mínar þá held ég bara að það þýði ekkert að skrifa e-ð um gjörðir mínar hér heima, jólafrís tjúttið hefur verið... tja skrautlegt ef svo má að orði komast
En já ég fer aftur að skrifa e-ð hérna þegar ég fæ þörf fyrir það (sem verður pottþétt í próftíðinni, þá langar mann alltaf til að gera allt annað en að læra)
Þannig að ég ætla bara að halda þessari síðu uppi fyrir myndirnar mínar... finnst samt alltaf gaman að fá komment
Er búin að setja inn myndir sem ég hef tekið af því sem liðið er af þessu ástkæra jólafríi.... eru inni í Egilsstaðamöppunni, á eflaust eftir að taka fleiri myndir og skelli þeim þá inn í sama albúm
Hilsen... Herdís Magna eldfersk að læra efnafræði
4-bútýl-3,5-díetýlhept-4-en-2-ól (Ragga búðu þetta til)
Herdís Magna
18. desember 2006 klukkan 22:37
Einhvern tíman gef ég mér tíma í að skrifa inn almennilega færslu hérna... Moske þegar ég verð komin í jólafríð einn og háfur dagur í það...
Stærðfræði, efnafræði, eðlisfæði (vonnabí) og karmínumynd er það sem gengur fyrir hjá mér þessa dagana..
Gaf mér samt tíma í tjútt á laugardaginn og er búin að setja inn myndirnar frá því, tékk it... gæti skrifað helling um það en ætla að fara að reikna stærðfræði, demit próf á morgun...
já og ekki ómerkilegri manneskja en Magna amma er áttræð í dag, hún er best...
Herdís Magna
Herdís Magna